Tangi leggur aðaláherslu á umhverfismennt og útinám. Starfið byggir á aðalnámskrá leikskóla og við fléttum þetta saman í okkar námskrá. Við erum með dásamlegt nærumhverfi sem við nýtum vel í okkar starfi, lærum á bæinn okkar, fjöllin, fjöruna, skóginn, náttúruna og veðrið. Við elskum að vera úti...í öllum árstíðum og veðri, við lærum mest með eigin upplifunum og rannsóknum. Okkur þykir gaman að elda úti og takast á við áskoranir. það er hægt að gera ævintýri úr flestu og börn elska ævintýri.