news

Þorrablót á Tanga

26 Jan 2024

Það er hefð fyrir því að halda þorrablót á Tanga á bóndadaginn. Við erum með hefðbundna dagskrá eins og á flestum þorrablótum. það er fjöldasöngur, skemmtiatriði sem börnin eru búin að skipuleggja og æfa, fjöldasöngur, stelpur syngja minni karla og strákar syngja minni kvenna, við dönsum gömlu dansana og svo er hefðbundið borðhald með þorramat. þetta er mikil hátíðisdagur hjá okkur og skemmtileg hefð sem við höfum haft frá upphafi Tanga